Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ostaveisla í Vínbúðunum

01.09.2008

Ostaveisla í VínbúðunumNú er Ostaveisla í Vínbúðunum í september. Hægt er að nálgast frábærar uppskriftir með ostaívafi og upplýsingar um hvaða vín henta með. Einnig hefur verið gefinn út skemmtilegur bæklingur um osta og vín.

 

Ostar hafa náð miklum vinsældum, bæði sem hluti af máltíð og sem sjálfstæðir réttir, auk þess sem þeir eru mikið notaðir í matargerð, en ostabakkar eru einnig vinsælir. Flestum kemur rauðvín í hug þegar velja á vín með ostum en hvítvín eru ekki síðri með ostum og í sumum tilvikum jafnvel betri en rauðvín. Sjaldgæft er að vín og ostar fari mjög illa saman, en þó eru ýmsar samsetningar sem ætti að forðast.

 

Endilega kynntu þér málið í næstu Vínbúð, en er einnig hægt að skoða bæklinga, uppskriftir og frábæra ostatöflu sem gott er að hafa til hliðsjónar þegar velja á vín með ostum.