Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ánægðustu viðskiptavinirnir í flokki smásölufyrirtækja

07.03.2006

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar fyrir árið 2005 voru kynntar á hádegisverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík 7. mars 2006.

Ánægðustu viðskiptavinirnir í flokki smásölufyrirtækja
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, í hópi vinningshafa Íslensku ánægjuvogarinnar.

Vínbúðirnar hlutu viðurkenningu Íslensku ánægjuvorgarinnar fyrir hæstu einkunn í flokki smásölufyrirtækja, þ.e. olíufélaga, stórmarkaða og Vínbúða. Vínbúðirnar lentu í fyrsta sæti með 69,5 stig en fyrirtækið hækkaði sig mest allra fyrirtækja í mælingunni í ár eða um 3,1 stig.

Íslenska ánægjuvogin er félag, sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og IMG – Gallup standa að hvað varðar þátttöku í Evrópsku ánægjuvoginni. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum, sem hafa áhrif á hana, svo sem ímynd, mat á gæðum, og tryggð viðskiptavina. Mælingin er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa leitt í ljós að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur það get sér vonir um.

Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir góða umsögn.