Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Síðasta Vínblaðið

17.03.2016

Síðasta tölublað Vínblaðsins er nú komið út, en það hefur verið gefið út fjórum sinnum á ári frá því 2003. Viðskiptavinir sækja í auknum mæli upplýsingar og efni á vefinn og er ákvörðunin um að hætta útgáfunni í samræmi við það. Þetta mun því ekki þýða að fræðslu til viðskiptavina verði hætt heldur mun formið breytast og efnið og vöruskráin birt á vinbudin.is.

Vínbúðin er stolt af því að vera leiðandi fyrirtæki í umhverfisábyrgð og er ákvörðunin um að hætta útgáfu Vínblaðsins einnig tekin út frá umhverfissjónarmiðum. 
Það er von okkar að viðskiptavinir taki breytingunni fagnandi og hafi skilning á þeim sjónarmiðum sem liggja að baki.

Í þessu lokatölublaði má meðal annars finna umfjöllun um páskabjórinn, fróðlega grein um viskí, skemmtilega grein um matreiðslu á önd og vínið sem hentar vel með, veisluráð og fréttir úr vínheiminum.

Vínblaðið má nálgast í öllum Vínbúðum og að sjálfsögðu hér á vefnum.

Njótið vel!