Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Viðtökur vonum framar

13.07.2007

Viðtökur vonum framarViðtökur viðskiptavina vegna nýrrar vínbúðar í Skeifunni eru vonum framar.  Að sögn Regínu Arngrímsdóttir verslunarstjóra eru viðskiptavinir afar ánægðir með nýju Vínbúðina og þá sérstaklega aðgengið og staðsetninguna.

Jafnframt er búðin rúmgóð og bjórkælir er í Vínbúðinni sem gleður margan viðskiptavininn. Starfsfólkið er jafnframt ánægt enda um að ræða bjarta og skemmtilega vínbúð.