Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis og tóbaks janúar - október

14.11.2014

Sala áfengisSala áfengis jókst um tæp 12 % í lítrum í október í samanburði við árið í fyrra. Söluaukning er í öllum helstu vöruflokkum m.a. var 11% meiri sala í rauðvíni og lagerbjór en í sama mánuði 2013.

Sala áfengis

Sala áfengis hefur aukist um 3,8% það sem af er ári þ.e. janúar – október í samanburði við árið 2013. Lítilsháttar samdráttur var í sölu á hvítvíni en aukning var í öðrum helstu vöruflokkum. Sala á lagerbjór jókst um 3,7% en um 14% aukning var í sölu á ávaxtavínum og 16% aukning í blönduðum drykkjum.

jan-okt.

Sala tóbaks
Fyrstu tíu mánuði ársins var aukning í sölu neftóbaks um rúmlega 20 % og á sama tímabili var aukning í sölu vindlinga um 1,7 % og reyktóbaks um rúm 4%.  Samdráttur varð aftur á móti í sölu vindla um tæp 4%.

Sala tóbaks