Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Fireball líkjör innkallaður

11.11.2014

Fireball líkjör innkallaðurInnflytjandi viskílíkjörsins Fireball Cinnamon (Haugen Gruppen ehf.) hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla vöruna frá neytendum. Ólíkar reglur gilda um innihald efnisins propylene glycol í Evrópu og Bandaríkjunum, en framleiðandi líkjörsins (Sazerac Company) sendi óvart vöru sem var ætluð bandaríkjamarkaði og því uppfyllir hún ekki evrópskar reglur. Engu að síður er vert að nefna að varan er ekki talin hættuleg neytendum.


Þeir viðskiptvinir sem hafa umrædda vörutegund undir höndum eru hvattir til að snúa sér til næstu Vínbúðar og fá vöruna endurgreidda.