Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný Vínbúð í Hafnarfirði

25.03.2014

Ný Vínbúð í HafnarfirðiVínbúðin í Hafnarfirði hefur flutt frá verslunarmiðstöðinni Firði að Helluhrauni 16-18.  Vínbúðin sem hefur hlotið nafnið Álfrún er með sambærilegt vöruval og Vínbúðin Heiðrún og er þar ein af stærstu Vínbúðum landsins. 

 

Húsnæðið er stórt og glæsilegt og rúmgóður kælir er fyrir  allan bjór.  Öll aðstaða fyrir viðskiptavini er eins og hún verður best og nóg er af bílastæðum. 

 

Opnunartími Vínbúðarinnar er:

  • mánudaga – fimmtudaga 11-18,
  • föstudaga 11-19
  • laugardaga 11-18.

 

Verið hjartanlega velkomin til okkar í Hafnarfjörðinn í Vínbúðina Álfrúnu.