Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Desember Vínblaðið komið út

10.12.2013

Desember Vínblaðið komið útNú er glænýtt og hátíðlegt Vínblað komið út. Í blaðinu er meðal annars að finna skemmtilega grein um freyðivín, sem eru afar vinsæl þegar gera á sér glaðan dag eða fagna saman. Páll vínráðgjafi deilir með okkur uppskriftum af ljúffengum og hátíðlegum kokteilum sem upplagt er að bjóða þegar vini og vandamenn ber að garði. Jólabjórnum og uppruna hans eru gerð góð skil og sagt frá metnaðarfullu starfi Vínskóla Vínbúðanna. Einnig er að finna vandaða grein um koníakið sem mörgum þykir ómissandi á þessum árstíma, auk frétta hvaðanæva að úr vínheiminum. Vínblaðið er hægt að nálgast frítt í öllum Vínbúðum, auk þess sem það er birt hér á síðunni. Njótið vel!