Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin í Hafnarfirði á nýjan stað

16.10.2013

ÁTVR hefur skrifað undir leigusamning á húsnæði fyrir nýja Vínbúð að Helluhrauni 16 – 18 í Hafnarfirði.

Áformað er að opna Vínbúðina í mars á næsta ári og loka núverandi Vínbúð sem staðsett er í verslunarmiðstöðinni Firði frá sama tíma. 

Vöruvalið verður stóraukið og munu viðskiptavinir geta valið úr öllu vöruúrvalinu sem ÁTVR býður upp á. Vínbúðin í Hafnarfirði verður þar með fjórða Vínbúðin sem hefur allt vöruvalið til sölu, hinar eru Heiðrún, Kringlan og Skútuvogur. Húsnæði

Vínbúðarinnar stækkar verulega, komið verður upp rúmgóðum kæli fyrir bjór og öll aðstaða fyrir viðskiptavini bætt. Nýja Vínbúðin liggur vel við umferð og næg bílastæði eru til staðar. Opnunartími verður sá sami og verið hefur í Hafnarfirði, þ.e. mánudaga – fimmtudaga 11 – 18, föstudaga 11 – 19 og laugardaga 11 – 18.