Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínblaðið

11.09.2013

Vínblaðið - September

Í september tölublaði Vínblaðsins má nálgast fróðleik af ýmsu tagi. Páll vínráðgjafi fer með okkur í ferðalag til Bourgogne í Frakklandi og deilir með okkur skemmtilegum og áhugaverðum fróðleik um þetta mikla vínhérað. Gissur vínráðgjafi flytur okkur fréttir úr vínheiminum, Júlíus vínráðgjafi deilir með okkur spennandi vín- og matarupplifun og einnig sígildri uppskrift að Boeuf Bourguignon sem tilvalið er að elda í haustveðrinu auk þess sem finna má umfjöllun um gyllta glasið og grein um fjölbreytni bjórs og framleiðslu hans. Frítt eintak af Vínblaðinu má nálgast í öllum Vínbúðum og einnig HÉR á vefnum. Njótið vel!