Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Skeifunni fær góðar viðtökur

28.06.2007

Vínbúðin Skeifunni fær góðar viðtökurViðtökur viðskiptavina vegna opnunar vínbúðar í  Skeifunni 5 eru framar vonum.  Sölutölur fyrstu daganna eftir opnun gefa til kynna að tímabært var að opna vínbúð á þessu svæði.

Að sögn Regínu Arngrímsdóttur verslunarstjóra eru viðskiptavinir afar ánægðir með nýju vínbúðina og þá sérstaklega aðgengið og staðsetninguna. Jafnframt er búðin rúmgóð og bjórkælir er í vínbúðinni sem gleður margan viðskiptavininn.

Vínbúðin er opin mánudaga - föstudaga frá kl.  09:00-20:00 og laugardögum frá 11:00-18:00.