Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Mikið selt af jólabjór fyrstu dagana

20.11.2012

Mikil sala var í jólabjór fyrstu söludagana.   Alls seldust um 105 þús. lítrar fyrstu þrjá dagana þ.e. fimmtudag – laugardags.   Í fyrra var 15. nóv. á þriðjudegi en þá seldust 110 þús. lítrar frá þriðjudegi til laugardags. 
Líkt og í fyrra var mest selt af Tuborg Christmas Brew en næst á eftir er Víking Jólabjór og Kaldi.  Neytendur virðast því íhaldssamir þegar kemur að jólabjórnum því þetta eru sömu  tegundir og voru mest seldar fyrstu dagana í fyrra.

Mikið selt af jólabjór fyrstu dagana