Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis og tóbaks jan-okt

05.11.2012

Sala áfengis

Sala áfengis jókst um 0,2% í lítrum fyrstu tíu mánuði í samanburði við árið í fyrra. Sala rauðvíns er nánast sú sama og í fyrra en aukning er í sölu hvítvíns um 2,1%.  Alls hafa verið seldir 15,1 milljón lítra það sem af er ári þar af er sala á lagerbjór 9,6 milljón lítra.

Sala áfengis og tóbaks jan-okt  
Ef sala áfengis í lítrum er skoðuð eftir söluflokkum, þ.e. bjór, léttvín og sterkt, sést að talsverður munur er á milli flokka.  Þannig stendur sala á bjór nánast í stað en sala á léttvíni er 2,9% meiri en á sama tíma í fyrra.  Hins vegar hefur sala á sterku áfengi dregist staman um 5,5%.
 

Raunbreyting á sölu eftir flokkum

Salan  í október er nánast sú sama og í október fyrir ári en í heildina er salan 0,5% minni í ár en í fyrra.

Sala í október 

Sala tóbaks
Í samanburði við árið í fyrra er samdráttur í sölu vindlinga um 3,4% og neftóbaks um 1,9%.  Hins vegar hefur sala á reyktóbaki aukist mikið eða um tæp 14% á milli ára. 
sala tóbaks