Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin á Hellu opnaði í dag

29.06.2012

Vínbúðin á Hellu opnaði í dagVínbúðin á Hellu opnaði á ný í dag, en henni var lokað árið 2010 vegna breytinga á leiguhúsnæði. Vínbúðin er á sama stað og áður í verslunarkjarnanum og er Sigríður Magnea Sigurðardóttir verslunarstjóri.

Í sumar er Vínbúðin opin mánudaga til fimmtudaga frá 11-18, föstudaga frá 11-19 og laugardaga frá 11-16. 

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega Vínbúð á Hellu.