Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vafi um gildistöku staðals um tregbrennanlegar sígarettur

30.05.2012

Vafi um gildistöku staðals um tregbrennanlegar sígaretturÁTVR hefur borist svar við erindi frá innanríkisráðuneytinu þar sem staðfestur var sá skilningur ÁTVR að vafi leiki á því hvort staðallinn ÍST EN 16156:2010 hafi öðlast skyldubindandi gildi hér á landi og réttaróvissa ríki um gildistöku hans.

Það skal ítrekað að allar sígarettur sem eru til sölu hjá ÁTVR uppfylla kröfur staðalsins og hafa gert í marga mánuði. Hér má sjá svar innanríkisráðuneytisins við erindi ÁTVR.

HÉR er að finna frétt frá ÁTVR um málið frá því í mars 2012.