Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Auglýst eftir starfsmanni á sölu- og þjónustusviði

16.04.2007

ÁTVR óskar eftir starfsmanni til starfa í innkaupaeiningu fyrirtækisins. Einingin annast öll innkaup á áfengi og tóbaki frá birgjum. Hún heldur einnig utan um ferli umsókna um nýja vöru.

 

Helstu verkefni:

 

Gerð pantana og samskipti við innlenda og erlenda birgja.
Frágangur samninga og skráning vöru.
Yfirferð vörureikninga.
Tollafgreiðsla og umsjón með innflutningi.
 

Hæfnisþættir:

 

Stúdentspróf af viðskiptabraut eða sambærilegt.
Nákvæm og vandvirk vinnubrögð.
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af innkaupum frá birgjum og/eða innflutningi er kostur.
Góð tölvukunnátta, svo sem af fjárhagskerfum (Navision), Excel, o.fl.

Tungumálakunnátta er æskileg.
 

Laun eru skv. kjarasamningum ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Sakavottorðs er krafist.

Umsóknarfrestur um starfið er til 29. apríl n.k. og skal sækja um á vefslóðinni www.hagvangur.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Sverrisdóttir, elisabet@hagvangur.is.