Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Auglýst eftir húsnæði í Garðabæ eða Hafnarfirði

13.02.2012

Auglýst eftir húsnæði í Garðabæ eða HafnarfirðiÁTVR hefur óskað eftir að taka á leigu um 500-600 m² húsnæði fyrir Vínbúð í Garðabæ eða Hafnarfirði. Húsnæðið þarf að vera á einni hæð og vel sýnilegt frá stofnbraut eða tengibraut og mikilvægt að umferð að og frá húsnæðinu sé greið. Gert er ráð fyrir afhendingu húsnæðisins síðla árs 2012. Nánari upplýsingar um auglýst húsnæði er að finna á vef Ríkiskaupa.

 

Vínbúðin Dalvegi hefur verið lokuð frá áramótum en glæsileg Vínbúð opnar þar eftir miklar endurbætur miðvikudaginn 15. febrúar.