Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis árið 2011

03.01.2012

Sala áfengis árið 2011Sala í desember var 2,6% minni en sama mánuð í fyrra.  Sala á rauðvíni og hvítvíni dróst lítilega saman en athygli vekur að sala á freyðivíni var tæpum 10% minni í ár en í fyrra. 

 

Ef litið er á söluna vikuna fyrir áramót sem er einn annasamasti tími ársins  þ.e. dagana 27. – 31. desember voru seldir 503 þús. lítrar af áfengi í ár sem er 7% minna en sömu daga í fyrra. Ef fjöldi viðskiptavina er skoðaður komu 94 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar sömu daga sem er tæplega 7% minnkun en í fyrra en þá voru viðskiptavinir um 101 þúsund.  Flestir viðskiptavinir komu 30. desember eða 43.900 viðskiptavinir og þann dag seldust 256 þúsund lítrar af áfengi. 

 

Á árinu 2011 voru seldir 18,4 milljón lítrar af áfengi sem er 2,7% minna en árið 2010.  Á heildina litið er aukning í sölu á léttvíni en samdráttur í bjór og sterku áfengi.  Alls komu 4.181 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar á árinu 2011 í samanburði við 4.256 þúsund árið áður.

 

Sala áfengis árið 2011