Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Jólabjórinn 2016 kominn í sölu

15.11.2016

Nú er jólabjórinn kominn í Vínbúðirnar en hann vekur alltaf mikla athygli og ljóst að mikið verður að gera í Vínbúðum um land allt í dag.   

Best er að nýta vöruleitina til að sjá hvaða tegundir eru í boði og í hvaða Vínbúðum þær fást. Leitað er eftir bjór og hakað í reitinn „tímabundin sala“ sem er að finna neðst í leitarvélinni (táknað með klukku). Þá kemur upp listi jólabjórtegunda. Með því að smella á nafn vörunnar er síðan hægt að sjá í hvaða Vínbúðum hún fæst og hvaða magn er til hverju sinni. 

Að þessu sinni verða um 50 tegundir af jólabjór og jólavörum í sölu þetta árið, en hér má sjá lista yfir þær vörur sem til eru núna.