Umbúðir um vöruna skipta máli í loftslagsmálum
ÁTVR ásamt systurfyrirtækum á Norðurlöndum hafa látið rannsaka umhverfisáhrif umbúða um vöruna og kolefnisspor þeirra. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna eru áhrifin eftirfarandi m.t.t. umbúða. Miðað er við einn lítra.
![](Portaldata/1/Resources/um_atvr/loftslagsmarkmid/uppfaert.png)
Léttgler er mun umhverfisvænna en hefðbundið gler
Umhverfisáhrif léttglers, 420 grömm eða léttari, 750 ml flöskur eru mun minni en hefðbundnu glerumbúðirnar. Talan er ígildi 525 g af CO2 á lítra. Í vöruspjaldi er birt þyngd umbúða og reikna áætluð kolefnisspor. Í Vöruleitinni er nú einnig hægt að leita eftir vörum í léttgleri.
Í framtíðinni munu koma fleiri vöruflokkar með þessum gagnlegu upplýsingum í baráttunni við loftslagsbreytingar.
Því léttari umbúðir, þeim mun minna kolefnisspor
Í nýlegri rannsókn sem finnska ráðgjafafyrirtækið Gaia (PDF) framkvæmdi er hægt að finna kolefnisspor umbúða og umhverfisáhrif en áður hafði verið unnin lífsferilsgreining til að finna stærstu umhverfisáhrifin í vörusafninu. Einnig eru í nýju skýrslunni tekið með í reikninginn hráefni umbúðanna og áhættugreining varðandi endurvinnslu og úrgang.
Fyrir neytendur sem vilja taka umhverfisvænar ákvarðanir er gott að hafa í huga að því léttari og endurvinnanlegri umbúðir, því minna verður kolefnissporið.
Skýrslur
Gaia skýrsla 2019 - Screening carbon footprint for aluminium wine packaging
Gaia skýrsla 2018 - Update of wine packaging LCA
Bio Intelligence Service skýrsla 2010 - Nordic life cycle assessment wine package study.