Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Þorrinn

24.01.2024

Árstíðabundnir bjórar hafa komið sterkari og sterkari inn undanfarin ár og hafa án vafa verið undanfari aukinna vinsælda á svokölluðu handverksöli eða handverksbjórum. Þessar vinsældir hafa brugghús landsins nýtt sér og er það mikið gleðiefni fyrir bjóráhugamenn sem geta nú beðið spenntir eftir því hvað brugghúsin bjóða upp á um páskana, á sumrin, í kringum októberfest, um jólin og á þorranum.  


Nú er einmitt komið að þorrahátíð okkar Íslendinga og sem hefst á bóndadaginn, föstudaginn 26. janúar og stendur til upphafs Góu 24. febrúar. Sala á þorravörum er hafin í Vínbúðum, en fyrir marga er þorrabjórinn kærkomin tilbreyting frá jólabjórnum vikurnar á undan. Viðskiptavinir flykkjast í Vínbúðirnar til þess að versla bjór í stað blóma handa sínum heittelskaða á bóndadaginn og bjóráhugamenn bíða í röðum eftir því nýjasta og mest spennandi frá brugghúsunum. 


Það skemmtilega þema sem virðist hafa myndast í kringum þorrabjórana er að framleiðendur eru kannski aðeins ævintýragjarnari en t.d. við framleiðslu jólabjóranna,  þar sem ekki er farið út í neinar öfgar (þó eru vissulega undantekningar á því).  Öðruvísi stílar og flokkar, framandi hráefni og skemmtilegar tilraunir með eikarþroskun virðast normið, og tekst betur til með hverju árinu.


Áhugasamir geta kynnt sér hvaða þorrabjórar verða í boði þetta árið í vörulistanum okkar þar sem má finna lista yfir þorrabjór sem er í sölu í ár og í hvaða Vínbúðum hann er fáanlegur.

Gleðilegan þorra!