Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala ársins 2009

21.01.2010

Sala ársins 2009Á árinu 2009 voru seldir rúmlega 20 milljón lítrar af áfengi.  Í lítrum var salan 1,4% minni en árið 2008. Sala rauðvíns dróst saman um 2,5% en sala hvítvíns var ein fárra tegunda sem meira var selt af á árinu en salan þar var 5,1% meiri en árið áður.

 

Sala lagerbjórs dróst lítilega saman  en sala á ódrydduðu brennivíni og vodka var 12% minni.  Einn mesti samdráttur ársins var í blönduðum drykkjum en sala þeirra dróst saman um tæplega 37% á árinu.

 

Sala ársins 2009

 

Salan í desember var 2% meiri í lítrum en desember 2008.  Samdráttur í sölu á ókrydduðu brennivíni dróst meira saman í desember en almennt á árinu en töluverð aukning varð í sölu á hvítvíni og rauðvíni miðað við fyrra ár.

Desember

 

Mikið annríki var í Vínbúðunum 30. desember, alls voru seldir tæplega 279 þúsund lítrar sem er 14,1% meiri sala en 30. desember 2008. 

30.desember