Sala áfengis fyrstu 9 mánuði ársins nánast óbreytt í magni á milli ára en salan í september dróst saman um 2,7%.
![Sala áfengis nánast óbreytt frá í fyrra](Portaldata/1/Resources/frettir/2009/Sala_jan-sept09_2.jpg)
Það sem af er árinu hefur sala á rauðvíni dregist saman um 1,7% í magni á milli ára, sala á hvítvíni hefur aftur á móti aukist um 6,4%. Sala á lagerbjór jókst á milli ára um 1,5% en dregið hefur úr sölu á blönduðum drykkjum og ókrydduðu brennivíni og vodka á árinu.
Sala í september er 2,7% minni í magni á milli ára.
![Sala áfengis nánast óbreytt frá í fyrra](Portaldata/1/Resources/frettir/2009/Sala_sept09_2.jpg)