Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Jólabjórinn 14.nóv

30.10.2014

Jólabjór 2014Sala á jólabjór í Vínbúðunum hefst föstudaginn 14. nóvember nk. Samkvæmt reglugerð á sala á jólavörum að hefjast 15.nóvember ár hvert.  Þar sem sá dagur lendir á laugardegi í ár og margar Vínbúðir á landsbyggðinni lokaðar, fékkst heimild til að hefja sölu á jólavörum deginum fyrr en vanalega.

Á síðasta ári seldust um 616.000 lítrar af jólabjór í Vínbúðunum sem var ríflega 7% aukning frá árinu 2012. Að þessu sinni verða í boði 36 mismunandi vörunúmer af 29 tegundum.

Best er að nýta vöruleitina á vinbudin.is til að sjá hvaða tegundir eru í boði og í hvaða Vínbúðum þær fást. Leitað er eftir bjór og hakað í reitinn „tímabundin sala“ sem er að finna neðst í leitarvélinni (táknað með klukku). Þá kemur upp listi jólabjórtegunda, en þessi leit er einungis virk á meðan jólabjórinn er í sölu. Með því að smella á nafn vörunnar er síðan hægt að sjá í hvaða Vínbúðum hún fæst og hvaða magn er til hverju sinni.