Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Mikið að gera í Vínbúðunum fyrir verslunarmannahelgi

30.07.2013

Vikan fyrir verslunarmannahelgi er ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum.  Í fyrra komu rúmlega 125 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar þessa viku og alls seldust um 713 þúsund lítrar af áfengi.  Til samanburðar komu 95 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar vikuna 16. – 21. júlí og þá seldust 430 þúsund lítrar af áfengi.


Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðina föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dagur ársins.  Flestir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18 eða allt að 7.000 viðskiptavinir á klukkustund.  Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum.  Fyrir þá sem vilja forðast langar biðraðir er gott að skipuleggja innkaupin vel og vera tímanlega.

 

Mikið að gera í Vínbúðunum fyrir verslunarmannahelgi


Flest bendir til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi í ár verði svipaður og í fyrra. Undirbúningur er nú í fullum gangi þannig að hægt verði að taka vel á móti viðskiptavinum.


Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna).