Sala á vindlingum (sígarettum) hefur dregist saman um tæp 13% í magni á tímabilinu janúar - september í samanburði við árið 2009. Á sama tíma hefur sala á neftóbaki aukist um 9,2% en í lok september höfðu selst tæplega 18,8 tonn af neftóbaki.
![Selt magn tóbaks](Portaldata/1/Resources/frettir/2010/Sala_tobak_jan-sept2010.JPG)
Sala áfengis á sama tímabili hefur dregist saman um 5,6% í magni. Mestur samdráttur er í sterkum og blönduðum drykkjum en minnst í sölu hvítvíns.
![Janúar - september](Portaldata/1/Resources/frettir/2010/Sala_afengi_jan-sept2010.JPG)