Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Nýtt Vínblað

22.06.2010

Nýtt VínblaðNýtt og brakandi ferskt Vínblað er nú komið í Vínbúðirnar. Auk vöruskránnar er blaðið stútfullt af sumarlegu efni sem ætti að höfða til margra. Mikið er af spennandi uppskriftum á grillið auk bragðgóðra kokteila sem hægt er að njóta með. Brúðkaupum eru gerð góð skil að þessu sinni þar sem fjallað er um vínvalið í veisluna auk hefða og siða sem tengjast þeim.