Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sölustarfsemi í og við Vínbúðir

Til ÁTVR berast oft beiðnir um að fá að selja t.d. happdrættismiða eða annað sambærilegt í eða við Vínbúðir. Sölustarfsemi er almennt BÖNNUÐ, en reglurnar eru þessar: 

  • ÁTVR leyfir ekki sölustarfsemi, t.d. miða- eða happdrættissölu, í og við Vínbúðir sínar.
  • Til greina kemur að veita undanþágur til samtaka sem starfa á sviði forvarnar í áfengis- og tóbaksmálum.
  • Slíkar undanþágur er hægt að sækja um með því að senda póst á agnar@vinbudin.is.
  • Í umsókninni þarf að koma skýrt fram nafn samtaka sem sækja um undanþáguna, staðsetning (Vínbúð), dags. og tími sölu.