Öllum er heimilt að flytja inn áfengi til einkanotkunar.
Áfengisheildsöluleyfi þarf til innflutnings á áfengi til endursölu, heildsölu eða framleiðslu áfengis í atvinnuskyni.
Leyfið er gefið út af sýslumanni í hverju umdæmi. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofum sýslumanna eða hjá leyfi@syslumenn.is.
Hér má nálgast umsókn um leyfi til framleiðslu, innflutnings eða sölu áfengis.
Áfengisheildsöluleyfið veitir rétt til þess að selja vöruna áfram til endurseljenda, en það eru handhafar vínveitingaleyfa (föst vínveitingaleyfi, svo sem veitingahús, hótel, barir o.s.frv.) og ÁTVR sem hefur einkaleyfi til smásölu á áfengi.
Rétt er að benda á að þeir sem hyggja á innflutning og/eða framleiðslu áfengis þurfa að hafa sótt um starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti viðkomandi sveitarfélags til að fá áfengisheildsöluleyfið.
Allir þeir sem náð hafa 20 ára aldri mega flytja inn áfengi til eigin nota.
Við innflutning á áfengi þarf að greiða opinber gjöld þ.m.t. áfengisgjald, skilagjald og virðisaukaskatt.
Upplýsingar um áfengisgjald má sjá hér: www.tollur.is og Lög um aukatekjur ríkissjóðs.
Frekari upplýsingar um hvernig hægt að gerast birgi hjá ÁTVR.