
Fyrir 4
- 800 g lambalundir
- 200 ml BBQ sósa
- 100 ml sojasósa
- 50 ml ólífuolía
- 2 hvítlauksrif
- Sesamfræ
- 2 stk. rauðlaukur
Blandið saman BBQ-sósu, sojasósu, ólífuolíu, fínt skornum hvítlauk og sesamfræjum í skál. Skerið lambalundirnar í bita og hellið marineringunni yfir kjötið. Marinerið kjötið í 1 klst. Þræðið kjötið á grillspjót. Grillið á rjúkandi heitu grilli í 2 mínútur á hvorri hlið. Skerið rauðlaukinn í tvennt og grillið hann líka í 2-3 mínútur á hvorri hlið
Þessi uppskrift er frá Grillmarkaðnum
VÍN SEM HENTAR:
Þessi réttur kallar á rauðvín í sætari kantinum, til dæmis Appassionato vín. Annað vín með sætuvott á líka vel við, hvort sem það er rósavín eða rautt.