
Fyrir 4
- 1 stk. lambalæri
- 1 ltr bláberjadjús
- 500 g frosin bláber
- 6 greinar timjan
- 1 heill hvítlaukur
Setjið allt nema lambalærið í blandara og maukið vel saman. Hellið marineringunni yfir lærið og marinerið í 2-5 daga. Því lengur, því betra. Takið lærið úr marineringunni og strjúkið sem mest af vökvanum af því. Vefjið lærið í álpappír, grillið á miðlungsheitu grilli í 30 mínútur og snúið því reglulega. Takið álpappírinn af og grillið lærið áfram í 10 mínútur. Leyfið kjötinu að hvíla vel í a.m.k. 10 mínútur áður en það er skorið.
MEÐLÆTI
- 4 stk. litlar sætar kartöflur
- 4 msk. 36% sýrður rjómi
- 1 sítróna
- Graslaukur
Vefjið kartöflunum inn í álpappír og bakið þær á grillinu með lambinu. Takið kartöflurnar úr álpappírnum, skerið í þær og setjið sýrðan rjóma ofan á. Raspið sítrónubörk yfir og sáldrið fíntsöxuðum graslauk efst.
Þessi uppskrift er frá Grillmarkaðnum
VÍN SEM HENTAR
Bragðmikið lambalæri kallar á kraftmikið rauðvín. Rioja vín koma sterklega til greina og þá sérstaklega Reserva eða Gran Reserva týpurnar. Kraftmikið, flott Bordeaux vín passar líka vel, gott Chateau vín frá Medoc, Pessac-Léognan, Pomerol eða St.-Emilion.