Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

RecipeCollection-2021

  1. Skerið vasa í kjúklingabringurnar og setjið fyllinguna í með teskeið.
  2. Vefjið parmaskinkunni utan um bringurnar og leggið í olíuborið, eldfast mót.
  3. Steikið í ofni við 170°C í 30-40 mínútur, allt eftir því hve stórar bringurnar eru.

 

RAUÐVÍNSSÓSA MEÐ SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM

  1. Saxið laukinn og sveppina smátt og steikið í olíu eða smjöri.
  2. Hellið rauðvíni í pott og látið það sjóða niður þangað til u.þ.b. ½ lítri er eftir.
  3. Bætið kjúklingasoðinu saman við og látið aftur sjóða niður um helming.
  4. Sigtið laukinn og sveppina úr sósunni. Bragðbætið með kjötkrafti.
  5. Þeytið smjörið í sósuna og kryddið með salti og nýmuldum, svörtum pipar.
  6. Bætið sólþurrkuðu  tómötunum út í sósuna rétt áður en hún er borin fram.

 

BAKAÐIR SMÁTÓMATAR MEÐ BASILÍKU, HVÍTLAUK OG MOZZARELLA

  1. Skerið tómatana og mozzarellakúlurnar í tvennt. Veltið upp úr ólífuolíunni og stráið hvítlauk og basilíkulaufum yfir. Bakið við 170°C í 15 mínútur.
  2. Með þessu er gott að bera fram ferskt klettasalat og ólífur.

 

VÍNIN MEÐ
Það eru ítalskir tónar í uppskriftinni upplagt að haka við rauðvín, Ítalíu og alifugl í leitinni.