Greinar
12.10.2022
Flestir sérfræðingar telja að bestu viskí veraldar komi frá Skotlandi, kannski réttilega, kannski ekki. Það eru þó að sjálfsögðu önnur lönd sem framleiða hágæða viskí eins og Japan, Bandaríkin, Ástralía, Ísland og Írland svo fá ein séu nefnd. En stöldrum aðeins við Írland.
18.06.2021
Hvítvín eru að öllu jöfnu borin fram kæld. Misjafnt er þó hversu köld þau eiga að vera og er þá gott að hafa ákveðin atriði í huga...
03.03.2020
Náttúruvín er hugtak og vísun í ákveðna hugmyndafræði víngerðarmanna sem á upptök sín í sveitum Frakklands, nánar tiltekið í Beaujolais héraði, upp úr 1960. Víngerðarmennirnir Marcel Lapierre, Jean Foillard, Charly Thevenet og Guy Breton vildu leita aftur til þeirra aðferða sem notast var við áður en síðari heimsstyrjöldin skall á.
27.05.2019
Umræða um umhverfismál verður sífellt háværari, sem betur fer. Sjálfbærni er hugtak sem margir hafa tileinkað sér, sumir til lengri tíma en aðrir styttri. Sjálfbærni getur verið flókið og víðfeðmt hugtak sem margir leggja mismunandi þýðingu í. Hægt væri að einfalda þýðinguna í það að við nýtum auðlindir okkar með þeim hætti að við göngum ekki á þær svo afkomendur okkar fái einnig að njóta þeirra.
01.07.2017
Það er ákaflega skemmtileg upplifun að njóta freyðivíns, þau henta við næstum öll tækifæri. Mér þykir einnig gaman að horfa á vínþjóna opna og bera freyðivín fram. Ég sat eitt sinn fjölrétta kvöldverð í Rheims, þar sem kampavín var með hverjum rétti, öll þjónusta var í toppklassa og gaman að fylgjast með þjónunum bera fram mat og kampavín, hvert öðru betra
30.06.2017
Freyðivín er framleitt með mismunandi aðferðum sem allar leiða þó að ákveðnu takmarki: að búa til freyðandi vín. Þegar freyðivín er búið til er ófreyðandi hvítvín gerjað aftur. Freyðivín er sem sagt alltaf gerjað tvisvar. Það sem skiptir vínframleiðandann mestu máli er þó hvernig koltvísýringurinn er fangaður í flöskuna.
19.05.2017
Slow Food er tiltölulega nýlegt fyrirbæri fyrir okkur Íslendinga, enda kannski ekki svo langt síðan skyndibitamatur varð áberandi hér landi, þrátt fyrir að pylsurnar hafi svo að segja verið samofnar við þjóðarsálina í þó nokkra áratugi.
30.12.2016
Sögu skipulagðrar víngerðar má rekja aftur um ein 7.000 ár eða svo. Það sem við köllum léttvín eða borðvín er því ekki nýtt fyrirbrigði. Fornminjar gefa til kynna að fyrst hafi skipulögð vínræktun í víngörðum hafist í Kákasus. En fljótlega eftir það barst þessi þekking til landanna fyrir botni Miðjarðarhafsins ...
30.12.2016
Lífræn ræktun vínviðarins leiðir af sér að allt umhverfi vínviðarins, svo sem garðurinn sjálfur og allt nánasta umhverfi hans, tryggir náttúrunni á svæðinu ákveðið heilbrigði og jafnvægi. Til þess að tryggja frjósemi jarðvegsins er eingöngu notaður húsdýraáburður og inn á milli vínviðarraðanna er ræktaður annar gróður sem tryggir fjölbreytileika í flóru víngarðsins.
30.12.2016
Til þess að vínviðurinn skili sem bestum árangri er mikilvægt fyrir vínbóndann, sem framleiðir lífrænt vín að hafa eftirfarandi í huga...