Greinar
18.06.2021
Ítalskur Pinot Grigio og Soave henta vel með rækjum og einföldum rækjuréttum. Sé notaður rjómi, smjör eða annað feitt innihaldsefni í réttinum getur verið ágætt að leita í sýruríkan Riesling.
25.05.2021
Er veisla fram undan? Þá eru hér nokkur hagnýt ráð sem gott er að hafa í huga við skipulagningu á kaupum áfengis fyrir veislu.
Flestir ákveða fyrst hvaða mat á að bjóða upp á og velja svo vínið með matnum. Fyrir suma er valið einfalt á meðan aðrir eru óákveðnari. Þá er gott að leita ráða hjá starfsfólki Vínbúðanna með valið og einnig er tilvalið að leita til Veisluvínsþjónustuna okkar sem staðsett er í Heiðrúnu, Stuðlahálsi 2.
28.12.2020
Um hátíðarnar er algengt að framreiddar séu þriggja rétta máltíðir. Forréttir og freyðivín stuðla ekki bara saman heldur parast einstaklega vel saman. Freyðivín hentar vel með fiskmeti, eins og t.d. laxi og skelfiski, hvort sem það er hrátt, eldað eða í súpu. Lambrusco er gott með parmaskinku, parmesan osti og balsamik ediki.
20.11.2020
Þegar ég heyrði fyrst af því fyrir nokkrum árum síðan að það væri gott að setja gráðost ofan á piparköku var ég allsendis ekki sannfærð. En ég ákvað þó að gefa því tækifæri þar sem mér finnst piparkaka góð og gráðostur líka. Og verð að segja að þetta er merkilega góð samsetning sem verður ekki síðri með sýnishorni af rifsberjahlaupi.
15.06.2020
Nú þegar loks er farið að sjást til sólar fara mörg okkar að huga að grillinu. Sópað er á svölum og sólpöllum og grillið skrapað og pússað svo allt sé nú fínt fyrir fyrstu grillveislu sumarsins.
Grillmatur getur auðvitað farið í allar áttir hvað varðar hráefni, en í grunninn hefur hann þetta reykta, léttbrennda bragð, í mismiklum mæli.
06.12.2019
Douro dalurinn í Portúgal dregur nafn sitt af samnefndri á sem rennur vestur yfir landamæri Spánar til Oporto þar sem áin mætir Atlantshafi. Dalurinn er óumdeilanlega eitt fegursta vínræktarsvæði heims og bæði hann og borgin Oporto eru vernduð svæði á heimsminjaskrá UNESCO.
29.08.2019
Ofnsteikt lambalæri eða hryggur eru sígildir íslenskir veisluréttir. Það er
fátt betra en gómsætt ofnsteikt lamb með eftirlætis kryddunum okkar
og uppáhalds meðlætinu. Þá förum við líka í veislugírinn og gerum vel
við okkur í víni...
29.08.2019
Það er þekkt um allan heim að nota reykt kjöt eða pylsur sem bragðgjafa í fersk salöt, en þunnar sneiðar af slíku kjöti gefa salatinu mjög afgerandi bragð...
29.08.2019
Lambapottréttir eru algengir í matarflóru margra heimshluta. Áður
fyrr var kjöt í karrí til dæmis sígildur réttur á hverju íslensku heimili. Á
Indlandi er þessi réttur vissulega mun bragðmeiri en uppskriftin sem
gefin var í húsmæðraskólum hér á landi fyrir áratugum síðan.
29.08.2019
Þegar á að grilla er best að velja feitari bitana af lambinu, því að þessi eldunaraðferð þurrkar upp fitulausa bita. Þá er ráðið annaðhvort að bera fitu á kjötið sem á að grilla, eða hafa vöðvann...