Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Skútuvogi opnuð eftir breytingar

02.05.2018

Vínbúðin Skútuvogi hefur nú opnað að nýju eftir breytingar. Búðin hefur verið stækkuð umtalsvert, bjórkælirinn stækkaður um helming og fleiri vörur þar en í öðrum Vínbúðum. Sama uppröðun er á léttvínum í Skútuvogi og hefur gefist vel í nýrri Vínbúð í Garðabæ, en í stað þess að raða eftir löndum eins og í öðrum Vínbúðum er léttvínum raðað eftir bragðeiginleikum sem gerir viðskiptavinum auðvelt að finna rétta vínið. Þannig er vínunum skipað í flokka eftir bragði og sætleika og með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat vínið hentar.

Við bjóðum viðskiptavini velkomna í glæsilega Vínbúð í Skútuvogi.