Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínbúðin Skútuvogi lokuð í apríl

03.04.2018

Vínbúðin Skútuvogi verður lokuð í apríl vegna breytinga. Búðin verður stækkuð talsvert og bjórkælirinn stækkaður um helming. Sama uppröðun verður á léttvínum í Skútuvogi og hefur gefist vel í nýrri Vínbúð í Garðabæ, en í stað þess að raða eftir löndum eins og í öðrum Vínbúðum er léttvínum raðað eftir bragðeiginleikum sem gerir viðskiptavinum auðvelt að finna rétta vínið. Þannig er vínunum skipað í flokka eftir bragði og sætleika og með hverjum flokki eru lýsandi matartákn sem gefa til kynna með hvaða mat vínið hentar.