Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Verslunarmannahelgin

02.08.2017

Vikan fyrir verslunarmannahelgi er jafnan ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra seldust um 762 þúsund lítrar af áfengi og um 135 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þessa viku. Til samanburðar má gera ráð fyrir að um 110 þúsund viðskiptavinir komi að jafnaði í Vínbúðirnar í hverri viku í júlí. 
Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðina föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dagur ársins. Í fyrra seldust 247 þúsund lítrar þann dag og fjöldi viðskiptavina var um 40 þúsund. Flestir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18, eða allt að 6.500 viðskiptavinir á klukkustund. Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum. Fyrir þá sem vilja forðast langar biðraðir er því gott að vera tímanlega. Á meðfylgjandi mynd má sjá skiptingu áfengissölunnar eftir dögum vikuna 25. – 30. júlí 2016.

Verslunarmannahelgin

Flest bendir til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi í ár verði svipaður og í fyrra. Allt kapp er lagt á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig.

Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna).