Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Verslunarmannahelgin

31.07.2019

Vikan fyrir verslunarmannahelgi er jafnan ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra seldust um 756 þúsund lítrar af áfengi og um 137 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar þessa viku. Til samanburðar komu um 115 þús. viðskiptavinir vikuna 15. – 20. júlí og þá seldust 526 þús. lítrar af áfangi. 

Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma í Vínbúðina föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi sem er jafnan einn annasamasti dagur ársins. Í fyrra seldust 222 þúsund lítrar þann dag og fjöldi viðskiptavina var tæplega 38 þúsund. Flestir viðskiptavinir koma á milli kl. 16 og 18, eða allt að 6.000 viðskiptavinir á klukkustund. Þar sem álagið er mest er algengt að grípa þurfi til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum. Fyrir þá sem vilja forðast langar biðraðir er því gott að vera tímanlega. 

Flest bendir til þess að viðskiptavinafjöldi fyrir verslunarmannahelgi í ár verði svipaður og í fyrra. Allt kapp er lagt á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig. Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgina á föstudegi og laugardegi en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna).

Sjá opnunartíma.