Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Verslum tímanlega

23.07.2021

Við hvetjum viðskiptavini til að vera snemma á ferðinni, en vikan fyrir verslunarmannahelgi er ein annasamasta vika ársins í Vínbúðunum. Í fyrra seldust 786 þúsund lítrar af áfengi í þeirri viku og tæplega 141 þúsund viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar. Það sem af er júlí hefur sala í Vínbúðunum verið 0,5% meiri en í júlí á síðasta ári.  Að jafnaði hefur sala undanfarnar vikur verið um 600 þúsund lítrar líkt og árið 2020. Gera má ráð fyrir að júlí verði söluhæsti mánuður ársins í Vínbúðunum eins og í fyrra. 

Að jafnaði er föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgi einn af annasömustu dögum ársins. Í fyrra seldust 229 þúsund lítrar þann dag og alls fengu um 38 þúsund viðskiptavinir þjónustu í Vínbúðunum. Flestir koma á milli kl. 16 og 18 og þá þarf oft að grípa til þess ráðs að hleypa viðskiptavinum inn í hollum. 
Fyrir þá sem vilja forðast bið og langar biðraðir er gott að huga að því að vera tímanlega! Gott ráð er að kíkja við fyrri part vikunnar og fyrri part dagsins.

Allt kapp er lagt á að taka vel á móti viðskiptavinum svo allt gangi sem best fyrir sig. Í Vínbúðunum er opið samkvæmt venju um verslunarmannahelgi á föstudag og laugardag en lokað sunnudag og mánudag (frídag verslunarmanna).
Hér er hægt að sjá nánar opnunartíma allra Vínbúða.