Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala ársins 2019

02.01.2020


Sala áfengis árið 2019 var tæplega 22,7 milljón lítrar sem er 3,1% meiri sala í lítrum talið en árið 2018. 

Viðskiptavinum fjölgaði einnig um 2,4% voru á árinu 2019, en alls komu 5,1 milljónir viðskiptavina í búðirnar, samanborið við tæplega 5 milljónir árið 2018. Um það bil 46 þúsund manns lögðu leið sína í Vínbúðirnar á Þorláksmessu í ár, sem er met í fjölda viðskiptavina, en áður hafa mest 44 þúsund manns verslað í Vínbúðunum á einum degi. 30. desember var einnig annasamur líkt og Þorláksmessa og komu tæplega 43 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar þann daginn.


Meðfylgjandi er sundurliðun helstu flokka.

Freyðivín og Kampavín eru almennt söluhár flokkur fyrir áramót en. frá 26. des. – 31. des. seldust 21.693 lítrar sem er aukning um 2,75% frá fyrra ári. Ef desember er skoðaður í heild þá var salan 44.462 lítrar sem er aukning um 10,6% frá árinu 2018.