Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Sala áfengis og tóbaks árið 2018 og þróun sölu undanfarin ár.

02.01.2019

Á árinu 2018 seldust rétt tæplega 22 milljónir lítra af áfengi í Vínbúðunum.  Það er 0,54% aukning frá árinu 2017 og mesta magn sem selst hefur til þessa. Ef skoðaðir eru helstu flokkar þá minnkaði sala á rauðvíni um 0,49%, á hvítvíni minnkaði salan um 2,42%, sala á bjór jókst um 0,48% og munaði þar mest um að sala á öðrum bjór en lagerbjór jókst um 6%.  Sala á blönduðum drykkjum jókst um 26% en það eru drykkir sem byggja á sterku áfengi.  

Mikill áhugi hefur verið á sölu kampavíns en það er undirflokkur freyðivíns. Sala á freyðivíni í heild jókst um 20% og salan á kampavíni sérstaklega um nærri 25%.  Seldir voru 14.389 lítrar af kampavíni en árið 2007 seldust 15.920 lítrar svo því marki hefur ekki verið náð.

Fjöldi viðskiptavina var 4.996 þúsund og fjölgaði um 1,6% frá árinu 2017.

Í tóbaki var salan þannig að ÁTVR seldi um 882 þúsund karton af vindlingum sem er 3% minnkun frá 2017, þá seldust um 4.478 þúsund vindlar sem er 7,4% minnkun frá 2017, af reyktóbaki seldust 7.642 kg en það er 9,9% minnkun frá 2017 og loks seldust  44,671 kg af neftóbaki sem er 18,7% aukning frá 2017.