Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Páskabjórinn 2022

09.03.2022

Fimmtudaginn 10. mars hefst sala páskabjórs í Vínbúðunum og í Vefbúðinni. Líkt og aðrar árstíðabundnar vörur er páskabjórinn seldur í takmarkaðan tíma, en sölutímabilið stendur til 16.apríl.

Eins og áður er úr skemmtilegu úrvali páskabjóra að velja, en í vöruleitinni er hægt að skoða hvaða páskabjór er í boði á hverjum tíma og í hvaða Vínbúðum varan fæst.