Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný Vínbúð í Þorlákshöfn

13.03.2003

Þann 12. mars síðastliðinn, var undirritaður samningur milli ÁTVR og Olíufélagsins ehf. um samstarf vegna reksturs á Vínbúð í Þorlákshöfn og leigu á húsnæði.

Vínbúðin verður við Óseyrarbraut 4 og er í flokki 80 tegunda vínbúða. Verslunarstjóri verður Brynjólfur Guðmundsson.

Gert er ráð fyrir að vínbúðin verði opnuð í maí næstkomandi.