Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Ný málverkasýning í Vínbúðinni Smáralind

04.07.2003

Ný málverkasýning í Vínbúðinni SmáralindNý málverkasýning var opnuð í Vínbúðinni Smáralind þann 1. júlí sl. Þar gefur á að líta málverk eftir listakonuna Maríu Svandísi. Sýningin mun standa yfir til 31. ágúst. María hefur málað mikið með olíulitum, vatnslitum, pastellitum og gert ýmsar tilraunir til að mála með ýmsum óhefðbundnum efnum og litum og hefur haldið sýningar á verkum sínum víða.

Flestar myndirnar sem María Svandís sýnir í Smáralind eru abstrakt með mannslíkamann í aðalhlutverki.