Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Hin sumarlegu rósavín

01.05.2017

Nú þegar hlýnar í veðri er upplagt að kynna sér hin sumarlegu rósavín. Í maí og júní leggjum við því áherslu á greinar, fróðleik og mataruppskriftir sem henta vel með rósavíninu. 

Rósavínið er best borið fram kælt og vínfræðingar segja að hér gildi reglan "því yngra því betra". Yfirleitt hentar rósavínið vel með léttum sumarréttum, en kokkarnir á Marshall restaurant deila nú með okkur girnilegum uppskriftum sem henta vel með rósavíninu. 

Njótið vel!