Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Freyðivín í júlí og ágúst

30.06.2017

Í júlí og ágúst verður áhersla lögð á að kynnast einkennum freyðivíns, en þessi spennandi vín eru framleidd með mismunandi aðferðum sem allar leiða þó að ákveðnu takmarki: að búa til freyðandi vín.

Þegar fólk hugsar um freyðivín, hugsar það langoftast um vín til að skála í eða fagna, en freyðivín eru einnig ágætis matarvín. Hér á vefnum er að vinna ýmsar greinar og fróðleik um freyðivín ásamt spennandi uppskriftum sem kokkar frá Sjávargrillinu settu fram, sérstaklega fyrir okkur.

Njótið vel!