Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Finnur þú ekki það sem þú leitar að?

19.02.2018

Sérpantaðar vörur eru þær sem ekki eru til í hillum Vínbúðanna og eru pantaðar beint frá innlendum birgjum. Í dag er að finna gott úrval af sérpöntuðum vörum í Vefbúðinni okkar á vinbudin.is en skráning þeirra er í höndum áfengisheildsala. Úrvalið eykst því dag frá degi og um að gera að kanna hvort varan sem þú leitar að sé að finna þar.

Sumar sérpantaðar vörur er hægt að kaupa beint af vefnum, en fyrir aðrar er hægt að senda fyrirspurn um fáanleika hverju sinni. Sérpantaðar vörur taka lengri tíma í afhendingu, en áætla má að það geti tekið allt að 10 daga að fá slíka vöru í hendurnar. 

 

Finnur þú ekki vöruna á vefnum?

Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að getur þú einnig sent FYRIRSPURN með því að fylla út form hér á vefnum um hvort hægt sé að útvega vöru sem ekki er til í vörusafni okkar. Athugið að ekki er lengur tekið við sérpöntunum í tölvupósti. Erfitt er að áætla afgreiðslutíma á vörum sem pantaðar eru með þessum hætti, en betra er að panta með góðum fyrirvara.

 

Athugið að ekki er hægt að skila sérpantaðri vöru!