4 cl vodka
1,5 cl basilsíróp
2 cl jarðarberjasíróp
safinn úr einum sítrónubát
Allt hrist saman, sett í martiniglas og skreytt með vanillustöng
Jarðarberjasíróp
500 g jarðarber / 400 g sykur
Látið jarðarberin í mixer og maukið. Látið bíða í kæli yfir nótt. Sigtið í gegnum fínt sigti í pott, bætið sykrinum út í og hrærið saman. Látið sjóða við lágan hita og hrærið í á meðan þar til sykurinn hefur leyst upp, látið sjóða í 3-4 mínútur. Kælið og setjið á flösku.
Basilsíróp
1 búnt basil
30 g sykur
30 cl vatn
Sjóðið vatn og sykur. Hreinsið basilikuna og setjið í sykurlöginn og látið standa í einn dag. Sigtið og sjóðið vökvann í ca 20 mín.