Vínbúðin á Selfossi óskar eftir sumarstarfsfólki
Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
- Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
- Umhirða búðar
Hæfnikröfur
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta
- Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða fullt starf. Unnið er alla virka daga og annan hvern laugardag.
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Sakavottorðs er krafist.
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

Nánari upplýsingar: Lárust Arnar Guðmundsson -
selfoss@vinbudin.is - 560 7846 og Thelma Kristín Snorradóttir –
starf@vinbudin.is – 560 7700
Sækja um starf