Sleppa valmynd og fara beint í meginmál

Vínval í brúðkaupið

 Vínval í brúðkaup eða aðrar veislur - fyrirsögnJúlli vínráðgjafi

Júlíus Steinarsson, vínráðgjafi
(úr Vínblaðinu, 2.tbl.8.árg.)

 

FORDRYKKUR
Í dag er léttvín á boðstólum í flestum brúðkaupum þó það sé alls engin skylda. Fordrykkur er í boði í flestum veislum og velja margir freyðivín umfram kampavín þar sem verðmunur er mikill. Skynsamlegast er að hafa fordrykkinn í þurrara lagi því það er mun frískara að fá þurrt eða hálfþurrt freyðivín fyrir matinn því það kemur munnvatnskirtlunum af stað. Fyrir þá sem vilja hafa fordrykkinn sætari er betra að velja hálfsætt en sætt þó ekkert sé útilokað í þessum málum. Varðandi magn má reikna með að freyðivínsflaska dugi í 7-8 glös af venjulegri stærð og oftast er reiknað með 2-3 glösum á mann.

MAGN BORÐVÍNA

Magn léttvína í veislu er alltaf visst vandamál en reynslan sýnir að brúðkaupsveislur standa gjarnan lengur og fer yfirleitt drýgra magn en í öðrum veislum. Venjan er að reikna með ½ flösku á mann og bæta síðan við öryggismörkum þannig að brúðarparið
sé að velta einhverju skemmtilegra fyrir sér í veislunni en hvort vínið dugi. Magnið þarf líka að reiknast út frá hvort léttvín verði veitt eftir að borðhaldi lýkur. Þegar verslað er fyrir fjölda manns þá ræður verðið svolítið ferðinni. Oft munar þó ekki miklu í verði að velja hentugra vín í stað þess að velja einungis það allra ódýrasta. Algengt er að taka heldur ríflegt magn því alltaf má skila því sem eftir stendur, bara að muna eftir nótunni. Gott ráð er þó að eiga smá auka magn afsíðis sem hægt er að tefla fram ef þurfa þykir.

Blóm

TEGUND VÍNA
Þegar valið er vín með mat er ýmislegt sem ber að hafa í huga. Númer eitt er að gestgjöfunum líki vínin sem boðið er upp á. Annað er að vínin sem valin eru þurfa að höfða til þorra gesta og falla vel að þeim mat sem boðinn er. Gjarnan er horft til hvers eðlis réttirnir eru svo sem ítölsk vín með ítölskum mat og spænsk vín með spænskum mat. Ef boðið er upp á kassavín ber að hafa í huga að í flestum tilfellum þarf að hella vínum í karöflur eða könnur þegar framreitt er. Gott er leita ráðgjafar hjá starfsfólki Vínbúðanna en flestar Vínbúðir hafa yfir að ráða þjálfuðu starfsfólki til að leiðbeina við val á víni. Einnig er hægt að senda tölvupóst á veisluvin@vinbudin.is eða hafa samband í síma 560-7726 virka daga milli 11 og 17. Góð regla er að taka ákvörðun um vínvalið tímanlega og að gefa sér tíma til að smakka vínið heima áður og þá gjarnan með vinum eða fjölskyldu og hafa á borðum svipaðan mat eins og í veislunni. Einnig er þarft að hafa í huga að panta tímanlega þannig að hægt sé að panta vínið sé það ekki til.

BJÓR
Það er algengt að bjóða upp á bjór þegar borðhaldi lýkur. Magnið er reiknað ca. lítri á mann (2 stórir eða 3 litlir) og æ fleiri velja bjór í flösku og losna þá við bera fram eitthvað af glösum. Þegar þjónusta er til staðar og hellt í glös eru venjulega notaðar stórar dósir en litlar þegar fólk hellir sjálft (flest glös rúma bara 330 ml.)

EFTIRRÉTTIR
Þegar eftirréttir eru bornir fram getur verið góður kostur að bjóða sætvín með. Þumalputtareglan er að nota sæt vín með sætu. Margar tegundir eru til, sæt hvítvín eru algengust en einnig eru styrkt vín notuð eins og púrtvín og sherry. Skemmtilegur og frískandi kostur er að bjóða upp á sæt freyðivín en þar eru til nokkrir góðir kostir.

KAFFI
Margir vilja bjóða upp á kaffi og koníak eða líkjör með kaffinu og ber þá að hafa í huga að 700 ml flaska gefur ríflega 23 einfalda en algengur skammtur er um 4,5 cl þannig að 70 cl flaska dugar fyrir ríflega 15 manns.